Ær sæddar í fyrsta sinn síðan 1994 eða 93 réttara sagt

Ja, reynum nú að koma þessu fjárbúi aftur inn í nútímann. Ég man það að Flekka varð til úr sæðingum og hún var fædd árið 1994, heimalingaárið mikla (8 stk. á pela á tímabili*)

*Þessir átta heimalingar hétu, ef ég man rétt: Flekka og Tunna, Snati og Tjása, Brella og ? og svo Vindill (heimtur úr svelti) og Drusli. Áttu það mörg sammerkt að hafa þjáðst af joðskorti og voru svolítið slappleit. Nöfnin dregin af því.

TígullÍ dag voru hér sæddar 5 ær, tvær fengu úr Grána og þrjár úr Hvell. Óskahrúturinn þetta árið er Blettur en svo er einn forystuhrútur sem heitir Tígull og mér finnst hann frekar fallegur. Alla þessa hrúta má víst finna í hrútaspilinu fyrir þá sem áhuga hafa.

Vonandi verða bara fleiri duglegar að ganga næstu daga svo við getum sætt fleiri, veitir ekki af í þessum úrkynjaða stofni okkar. Þetta eru nú samt fallegustu kindur sem ég veit um, bjartar yfirlitum, fínhyrndar og tígullegar (og brjálaðar en það er önnur saga)

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Runólfsdóttir

Sæll Þrymur, nei ég hef nú aldrei snert þennan, hann er á Sauðfjársæðingastöðu Suðurlands á Laugardælum, en skv. hrútaskránni er hann víst ágætlega leiðitamur ;)

Anna Runólfsdóttir, 13.12.2006 kl. 23:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband